örstutt...

Erum komin til Íslands aftur, þar sem alltaf er best að vera! Erum ekkert á leiðinni út aftur þar sem ég get klárað námið í fjarnámi héðan af skerinu.

Efast um að ég muni nenna að blogga mikið, enda var þessi síða nú aðallega ætluð sem fréttasíða á meðan við vorum úti.

En þessa dagana er nóg að gera, byrjuð að vinna, er í sumarskóla og nóg af skemmtilegum atburðum framundan, 2 brúðkaup og ein gæsun...
Svo er ég nú að reyna að koma mér í það að klára að taka íbúðina í gegn, þrífa og pakka upp úr kössum!

Stress stress stress

Já.. nú er sko nóg að gera hjá mér... brjálað að gera í skólanum, 2 stór verkefni í gangi, ein ritgerð og eitt s.k. heimapróf sem er einskonar ritgerð. Og öllu þessu á að skila fyrir mánaðarmót... Auk þess er allt of mikið sem þarf að gera áður en ég flyt heim.. pakka, þrífa, ganga frá pappírum og redda ýmsu...

í dag eru 2 vikur þangað til ég legg af stað til Noregs og þá þarf þetta allt að vera tilbúið...
Fyrir utan þetta hef ég svo sem haft það alveg ágætt hérna.. hef verið mikið í skólanum, oft langt frameftir og um daginn meira að segja langt frameftir nóttu, þannig ég hef lítið slappað af.

Þar sem ég hef lítinn tíma að elda mat og svoleiðis er mataræðið mitt frekar einhæft... Það sem hefur algjörlega bjargað mér er nýja uppáhaldstækið mitt sem ég keypti á 2500 kr. fyrir um mánuði síðan. Reyndar er það eftirherma af tækinu sem þið sjáið á myndinni, en virkar engu að síður mjög vel.


Með þessu get ég búið til allskyns jógúrtdrykki og ávaxtadryggi og fleira gott.. Og það besta er, er að þetta tekur miklu minna pláss en aðrir mixerar og það er súperauðvelt að þrífa þetta og því nota ég þetta að meðaltali einu sinni á dag, ef ekki oftar! Svo sannarlega góð kaup!

Jæja, þetta voru auglýsingar í boði Unnar!

Síðustu helgi hélt ég Eurovision partí sem heppnaðist bara nokkuð vel... Ég hélt með Serbíu þannig ég var bara sátt við úrslitin, finnst þó frekar leiðinlegt að Ísland skuli ekki takast að komast í aðalkeppnina..
Læt fylgja nokkrar vel valdar myndir úr partíinu, fleiri má finna á myndasíðunni... lykilorð fæst með því að senda mér tölvupóst ;o)


Helga og Pontus voru í svakastuði...


Það voru Anna vinkona Helgu og Nils tvíburabróðir Pontusar líka...


Jens og Jenny komu beint af Mamma Mia abbasýningunni og voru eldhress


Og það var dansað uppí sófa....


Ég var nú þarna líka.. orðin pínu þreytt reyndar..


hef svo sem lítið að segja fleira, ætla að halda áfram að læra svo ég geti kannski eitthvað slappað af áður en ég flyt!

Bara fyrir Elías ;o)

Elías er búinn að vera að biðja mig um að skrifa færslu þótt hann viti nú svo sem allt sem gerist hérna hjá mér úti, en best að gera honum til geðs samt Glottandi

Það hefur svo sem mest lítið gerst hérna úti, lífið gengur sinn vanagang.. nóg að gera í skólanum og verður ennþá meira að gera á næstunni býst ég við.

Það er núna ákveðið að ég mun flytja heim í sumar, vona svo bara að ég komist inn í námskeiðin sem ég sótti um en ef mér skilst rétt á það ekki að vera neitt mál. Ef ég kemst ekki inn í það sem ég vil helst fara í valdi ég varanámskeið líka.

Ég er farin að hlakka ansi mikið til að komast heim aftur, þrátt fyrir að ég hafi það mjög gott hérna úti er alltaf best að vera á Íslandi. Svo er ég líka búin að skrá mig í Bootcamp aftur og byrja þar um leið og ég kem heim, hlakka mikið til þess, verður sérstaklega skemmtilegt því í þetta sinn verður Svanhvít vinkona í sama hóp og ég Brosandi

Svo verður líka nóg að gera í sumar, brúðkaup hjá Svanhvíti og Óla og líka hjá Elín Heiðu og Gabriel, sem þýðir gæsun tvisvar líka, svaka stuð :o)

En jæja, þetta verður að duga. Best að enda á því að segja frá veðrinu hérna sem er frábært, spáð 18-20 stiga hita alla helgina og sól og fínerí.Brosandi

Sól og blíđa

Jæja þá er kominn tími á nýja færslu...
Hef nú frá hinu og þessu að segja í þetta sinn.
Við Elías erum svo sem ekki búin að gera mikið meira en að njóta veðurblíðunnar og pakka fyrir heimferðina hans. Reyndar komu Amma og Afi í heimsókn í vikunni fyrir páska og þá var farið í búðir og söfn með þeim. Um páskana var svo haldið uppá 70 ára afmælið hans afa og var þá borðaður dýrindis matur, humarsúpa í forrétt, nautalundir í aðalrétt, bæði a la mamma og svo dýrindis frönsk súkkulaðikaka a la Unnur með ís, rjóma og ferskum ávöxtum  í eftirrétt. Allt mjög vel lukkað.
Á mánudeginum, þ.e. 2. í páskum fór svo Elías til Íslands og síðan þá hef ég nú bara verið í skólanum og að slappa af.
Ég er þessa dagana að ákveða hvernig haustið mitt verður. Ég get sem sagt valið hvaða námskeið ég tek þá alveg sjálf og get nánast valið hvað sem er. Þetta hefur ekki verið auðvelt því það er eiginlega allt of mikið að velja á milli, reyndar átti ég mjög erfitt með að finna eitthvað sem ég hef brennandi áhuga fyrir fyrst en svo komst ég að því að ég má taka námskeið í fjarnámi og er búin að finna nákvæmlega það sem mig langar að læra. Fyrst er það námskeið í verkefnastjórnun en svo það sem ég er mest spennt fyrir að fara í, grafísk vefhönnun og það sem heitir á ensku Vectorbased Illustrations and animation. Ég á þó ennþá eftir að komast að því hvort ég komist inn í þessi námskeið, veit ekki hversu erfitt það er ennþá en eflaust er takmarkað pláss. Ef allt gengur að óskum mun ég sem sagt bara vera í fjarnámi í haust sem þýðir að ég mun bara vera á Íslandi, allavegana meirihluta haustsins. Það auðveldar strax málin þar sem ég hef eins og er enga íbúð til að vera í í Gautaborg í haust. Svo er bara lokaverkefnið eftir sem ég tek á Íslandi næsta vor, svo get ég farið að titla mig "Viðmótshönnuð" eða eins og það heitir á ensku "Interaction designer" hlakka mikið til Brosandi

Að lokum ætla ég bara að segja frá veðrinu hérna þessa dagana.. í gær var um 16 stiga hiti en í dag rúmlega 20 stiga hiti. Og spáin á morgun og hinn eru 21-22 stiga hiti eins og sjá má hér:


Í sól og sumaryl....

Jæja, bara örstutt montblogg...
Við Elías vorum að koma inn eftir hjólatúr í hvorki meira né minna en 18° hita.. Já.. vorið er svo sannarlega komið hingað, síðustu dagar hafa verið hlýir og góðir, 14-18° hiti, sólin skín og það er algjört logn, alveg frábært Hlæjandi Og ekki skemmir að veðurspáin fyrir næstu daga er svipuð, örlítið svalara en sól og logn.
Það fylgir þessu líka það að allt er að verða grænt, blómin byrjuð að blómstra og maður vaknar við fuglasöng...

Um helgina vorum við dugleg að fara í göngutúra, tókum einn góðan göngutúr um miðbæinn á laugardaginn, þar sem reyndar voru keyptir sumarskór Glottandi sjá hér:
 

Svo á sunnudeginum skelltum við okkur í Slottskogen, sem er stór garður hérna í Gautaborg. Þar er æðislegt að rölta, dýragarður í miðjunni með páfuglum, elgum, mörgæsum og fleiru, og nóg af grasflötum til að setjast á og njóta veðursins.

Enn og aftur minni ég á að ef einhverjum langar í heimsókn er frábær tími framundan, gott veður, liseberg fer að opna og það er nóg pláss hjá mér(ekki það að ég hefði nú alveg viljað hafa Elías hérna)

Enda þessa færslu á nokkrum vormyndum héðan úr garðinum okkar... fleiri myndir má svo sjá hér








Loksins einhverjar fréttir...

Jæja.. komið að því að skrifa smá færslu enda hef ég frá þó nokkru að segja..

Byrjum á helginni fyrir viku síðan... sem var mjög skemmtileg.. Helga systir átti afmæli á föstudeginum og bauð okkur í afmælisveislu á laugardeginum. Ég er alltaf að baka eitthvað nýtt þessa dagana og ákvað að baka fyrir hana djöflatertu sem var í Gestgjafanum um daginn... það gekk bara mjög vel og fékk ég mikið hrós fyrir hana sem var nú bara skemmtilegt. Þar sem ég vissi nú ekki alveg hversu margir yrðu ákvað ég að baka líka skúffukökumuffins(skúffukaka sem ég bara bakaði í muffinsformum) þar sem ég á uppskrift sem er alveg svakalega létt og mistekst aldrei. Auðvitað voru sett kerti á herlegheitin og fékk hún Helga svo að blása eins og í gamla daga, hérna er svo mynd af kökunni...


Það skemmtilegasta þetta kvöld var nú sennilega að gefa henni gjöfina sína... Það var erfitt að finna eitthvað handa henni þar sem hún óskaði sér ekki neins annars en nokkurra gamecube tölvuleikja og rafmagnstannbursta... og hversu gaman er nú að gefa svoleiðis gjafir. Eftir að hafa spurt hana aftur og aftur auk þess sem pabbi bað mig um að finna eitthvað sem hann gæti gefið henni komst ég á fimmtudagskvöldinu að því að hana langaði í Nintendo Wii. Hún sagði það nú mest samt í gríni þar sem svoleiðis tölva er í fyrsta lagi frekar dýr auk þess sem það er næstum því útilokað að finna hana í búð hérna í Svíþjóð, uppselt allsstaðar og langir biðlistar í flestum búðum þannig það er almennt ekki hægt að fá svona nema að bíða í einhverja mánuði.
En eftir að hafa spjallað við pabba og fleiri sem voru í vandræðum með gjöf tókst mér að safna saman pening sem dugði ákkurat fyrir tölvunni. Var búin að ákveða að gefa henni bara kort þar sem á stæði að hún myndi fá tölvuna um leið og hægt væri að kaupa hana einhversstaðar, en eftir að hafa skoðað umræðuþræði á netinu komst ég að því að örsjaldan er hægt að fá þessar tölvur í leikfangabúðum, þar sem þar eru ekki biðlistar þannig þegar sending kemur gildir bara fyrstur kemur fyrstur fær. Ég undribjó mig því til þess að hringja í allar leikfangaverslanir í Gautaborg, og byrjaði að hringja. Á fyrsta staðnum var ekkert til og ekki vitað hvenær næsta sending kæmi, á næsta stað svaraði ekki en á þriðja staðnum var svarað og viti menn ein tölva var til þar. Reyndar sagði afgreiðslumaðurinn mér að hann mætti ekki taka hana frá en ég fékk hann til að gefa mér 30 mínútur til að koma og kaupa hana. Og auðvitað náði ég því, komst að því þegar ég var að borga fyrir tölvuna að það hefðu allavegana 50 manns hringt á eftir mér...
En svona aðeins til að stríða henni ákvað ég að gefa henni fyrst annan pakka sem var skókassi fullur af allskonar drasli sem ég fékk á 1 sænsk kr. stykkið. Auk þess sem mér tókst að finna batterídrifinn tannbursta á 30sænskar kr.  þannig ég lét þetta líta út eins og það væri aðalgjöfin og auðvitað var hún ánægð með rafmagnstannburstann sinn, eða þóttist vera Brosandi
Aðeins seinna gaf ég henni svo aðalpakkann, og hún var heldur betur ánægð, varð heldur betur hissa þegar hún sá hvað þetta var, eins og sjá má á myndinni að neðan:


En þetta kvöld endaði allavegana á smá djammi sem endaði á gay skemmtistað sem við skemmtum okkur bara ansi vel á, og Elías líka Glottandi

Síðustu viku var svo brjálað að gera hjá mér, þurfti að skila tveim verkefnum á föstudaginn svo ég gerði nú mest lítið annað en að læra alla daga, kvöld og nætur.

Síðustu helgi tókum við Elías því bara rólega, fórum reyndar á tattoosýningu hérna í Gautaborg þar sem við meðal annars fengum að sjá heimsinst mest tattooeruðu konu - (www.isobelvarley.com ) og svakalega sýningu með algjörum vitleysingum sem meðal annars hengdu sig upp með krókum í gegnum húðina. Afskaplega áhugavert...

Jæja, þá vitiði hvað hefur á daga okkar drifið síðustu daga... Að öðrum áhugaverðum fréttum:

Fyrst ætla ég að byrja að segja frá því að ég var í fyrsta sinn á ævinni að kaupa mér námsbók sem ég þurfti ekki á að halda, keypti mér góða bók um viðmótshönnun sem ég er bara nokkuð sátt við og er að spá í að fara að lesa mér til dundurs. Auk þess var ég líka að kaupa mér Photoshop bók sem er um 1050 bls. til að læra nú almennilega á þetta. Virðist vera frábær bók þannig ég ákvað að kaupa mér bara bók um Flash úr sömu seríu, sem ég er núna að bíða eftir.. Mér finnst frekar furðulegt að vera að kaupa mér svona fræðibækur bara uppá gamnið.. en þar sem mig hefur alltaf langað að læra þetta almennilega ákvað ég að nota tækifærið að kaupa þetta hérna úti þar sem þetta er töluvert ódýrara en á Íslandi. Borga fyrir allar þessar 3 bækur 500 sænskar krónur, sem er tæpur 5000 kall...
Auk þess þarf ég að hafa eitthvað að gera á kvöldin í apríl og hluta af maí því ég verð ein hérna úti..

Eftir mikla atvinnuleit fyrir Elías hérna í Svíþjóð erum við loksins búin að gefast endanlega upp. Hann var ekki búin að fá neina vinnu hérna þrátt fyrir að múrarar er sú atvinnugrein sem vantar mest í hérna. Í langflestum tillfellum er það sennilega út af því að hann er ekki altalandi sænsku, sumir hafa viðurkennt það meðan aðrir hafa bara ekki gefið neina ástæðu. Ekki vantar uppá mentunina eða reynsluna allavegana þannig þetta er frekar skrítið mál. Í síðustu viku fékk hann reyndar loksins eitt atvinnutilboð, en með fáránlega lágum launum og auk þess vorum við þegar búin að ákveða að hann færi heim til Íslands. Aðalástæðan fyrir því að hann er að fara núna er að hann fékk mjög gott atvinnutilboð á Íslandi, verður byggingastjóri hjá byggingarfyrirtæki. Þar sem það er smá frí hjá mér í skólanum um páskana fer hann ekki fyrr en eftir páska, eða 9. apríl. Svo ætlar hann að kíkja aftur till mín í maí og hjálpa mér að pakka áður en við leggjum af stað í ferðalagið um Noreg og í Norrænu. Ég er búin að panta far fyrir okkur tvö með Norrænu þann 1. júní þannig við verðum komin heim þann 5. júní.
Ef einhver skyldi vilja koma með okkur er hægt að breyta miðanum ef það er pláss í bátnum alveg í einhvern tíma í viðbót, ef breytt er ekki seinna en 41 degi fyrir brottför er ódýrt að breyta og við viljum endilega fá einhvern með okkur bæði uppá félagsskapinn og til að spara smá.

En þá held ég að þið vitið flest allt sem hefur gerst hjá okkur..

Minni á að það er nóg pláss hjá mér ef einhver vill kíkja í heimsókn, sérstaklega á meðan Elías er á Íslandi Glottandi

Hver vill heimsćkja Svíţjóđ, Noreg og Fćreyjar í einni ferđ?

Jæja, þá er enn ein helgin komin, ætlaði nú að vera löngu búin að skrifa hérna en það er bara búið að vera svo mikið að gera í skólanum.
Síðasta helgi var nokkuð róleg, gerðumst einstaklega menningarleg og skelltum okkur í náttúrufræðisafnið(naturhistoriska museet) hérna þar sem við gátum skoðað uppstoppuð dýr af öllum stærðum og gerðum, allt frá litlum fiðrildum til steypireyðs í heilu lagi. Við gerðumst svo sniðug og keyptum okkur bara árskort í þetta safn og nokkur í viðbót þar sem það munaði svo litlu á verðinu, þannig nú getum við rölt um helstu söfnin í Gautaborg hvenær sem er...Brosandi
Um kvöldið tók ég mig til og bakaði bæði skúffuköku og hollustumuffins, svakalega heimilisleg...
Í vikunni hefur svo mest lítið gerst hjá okkur, ég var í fríi í gær þannig við ákváðum að skella okkur í bíltúr í ódýru búðina í Ullared ásamt Helgu systir. Þar gerðum við góð kaup eins og venjulega, keypti mér meðal annars 2 kjóla og 1 pils á 3000 kr. það gerist ekki mikið ódýrara..

Svo föttuðum við í vikunni að það fer að koma að því að við þurfum að panta farið með Norrænu heim í sumar. Við erum búin að ákveða að fara þann 3. júní frá Noregi. Ætlum að gera smá ferð úr þessu og keyra aðeins um suður Noreg á leiðinni í bátinn. Það er ekki á hverjum degi sem maður er á bíl og getur skoðað sig um þarna... Svo kemur Norræna eins og venjulega við í Færeyjum en stoppar í þetta skipti allan daginn þarna þannig okkur gefst betra tækifæri að skoða okkur um þarna en í fyrra.
Núna er bara vandamálið okkar að okkur dauðlangar að hafa einhverja með okkur, bæði útaf því að ferðin með Norrænu er miklu skemmtilegri ef maður er fleiri saman og svo að sjálfsögðu líka af því að það munar alveg rosalegu í verði fyrir okkur. Ég er búin að reikna það út að ef við erum 4 saman kostar farið 15 þús á mann í góðum klefa með glugga og ísskáp, það er örlítið ódýrara að vera í klefa sem er ekki með glugga og ísskáp, en það er takmarkað veitingastaðaúrval á bátnum og sparar mikinn pening að geta verið með smá nesti með sér sem er þá hægt að geyma í ísskápnum.
Þannig ef einhverjum langar að kíkja í heimsókn til okkar í lok maí og svo koma með okkur í þetta roadtrip þá er um að gera að láta okkur vita sem fyrst Glottandi
Þetta er náttúrulega líka mjög skemmtilegur tími til að kíkja út til Svíþjóðar, Liseberg opið og sennilega orðið nokkuð hlýtt... Ég er líka búin að kanna það hvað flugmiði til Danmerkur eða beint til Gautaborgar kostar eina leið á þessum tíma og er það milli 10-16 þús ef maður pantar fljótlega... Best að benda á að ef einhverjum langar til Danmerkur fyrst þá yrði þetta heldur betur góð ferð um Norðurlöndin, öll Norðurlöndin nema eitt í einni ferð.... Glottandi
Jæja eftir þessa svakalega spennandi lýsingu ættu allir að vilja koma með okkur.. þannig best að segja fyrstur kemur fyrstur fær... Hlæjandi

Góđar fréttir í ţetta sinn

Ég var að ræða við eina hérna sem sér um skipulagið á náminu um það hvort ég geti gert lokaverkefnið á Íslandi. Ég var búin að heyra að það ætti að vera hægt að gera lokaverkefni í öðru landi en var með vissar áhyggjur að það gæti orðið vesen og mörg ferðalög fram og tilbaka. En núna er ég búin að komast að því að þetta er alls ekkert mál, þarf bara að finna mér fyrirtæki til að vinna verkefnið hjá og svo þarf ég ekkert að koma út nema til að kynna verkefnið í lokin. Þetta þýðir sem sagt að ef allt gengur að óskum, þ.e. ég finn mér áhugavert verkefni á Íslandi, þá flyt ég heim næstu jól Brosandi

Ef maður svo tekur sig til og reiknar út hvað ég á mikinn tíma eftir hérna úti þá eru það bara um 3 mánuðir núna fram að sumri, ætla að sjálfsögðu að koma til Íslands og vinna í sumar, verð í tæpa 3 mánuði á Íslandi, svo er bara haustið eftir sem eru tæpir 4 mánuðir... þannig ekki mikið eftir hérna.

Ætla samt að benda á það að mér líður mjög vel hérna, að mörgu leyti frábært að vera úti í Svíþjóð, en mér líður samt alltaf lang best á Íslandi þar sem ég hef flesta ættingja, vini og ekki má gleyma Lillu Glottandi

Svo hlakka ég líka rosalega til að byrja að vinna við þetta sem ég er að læra. Ég er svo ánægð að hafa valið þetta fag því þetta hentar mér ótrúlega vel...
svo verður líka ágætt að byrja aftur í Bootcamp, er ekkert allt of dugleg að hreyfa mig hérna úti, enda brjálað að gera í skólanum, og vöðvabólgan er komin aftur og henni fylgir hausverkur og vesen.. Sakna vellíðuninni sem fylgdi því að vera í Bootcamp.

Myndalýsing...???

Verð að spurja ykkur sem lesa þetta hvort þið skiljið þetta betur en ég..

Ég var að klára að skrifa færsluna fyrir neðan og var að setja myndirnar inn, núna er það þannig hjá bloggar.is að þegar maður setur myndir inn opnast sér gluggi fyrir það þar sem maður getur stillt ýmislegt eins og stærð og hvar myndin á að vera og svo er líka hægt að skrifa myndalýsingu... sem ég hef ekki hugmynd hvar birtist..
Ég allavegana ákvað að vera ekkert að eyða tíma í myndalýsingu, þær skýra sig sjálfar..
Ýti svo á takkann sem setur myndina inn þegar ég er búin að stilla allt sem þarf og fæ þá upp þennan glugga, sem ég þrátt fyrir að vera læra að hanna notendavænt útlit á heimasíður og svoleiðis alls ekki skil..



Jæja, sá sem getur útskýrt fyrir mér hvers vegna fatlaðir gætu átt í erfiðleikum með að sjá myndina ef ég skrifa ekki myndalýsingu mega endilega gera þetta.. kannski er bara eitthvað sem ég hreinlega ekki veit í þessu fagi...

Þetta endaði allavegana á því að ég skrifaði myndalýsingu en ég sé hana hvergi birtast þannig ég veit ekkert hvaða gagn hún hefur fyrir fatlaða..

SúperElías og Sheriff Unnur...

Jamm, skruppum í partí í gær til Nils, bróðir Pontusar kærasta Helgu. Þetta var grímupartí hjá honum og þeim sem búa á sama gangi og hann, svona "gangapartí" eins og þetta kallast hérna..
Ætluðum upphaflega ekki að fara en á síðustu stundu ákváðum við bara að skella okkur, enda lítið annað planerað fyrir helgina. Eftir smá leit eftir grímubúningum fundum við þessar fínu hvítu gammosíur á Elías, keyptum smá efnisbút og máluðum smá og úr varð SúperElías. Ég skellti mér bara í gallabuxur, skyrtu og kúrekastígvélin mín, fann svona kúreka "sheriff" hatt og byssur í leikfangabúð og var sem sagt kúrekalögga..
Þetta var bara mjög fínt kvöld, fullt af skemmtilegum búningum, t.d. var Helga systir og vinkona hennar blár og hvítur Ipod.
Annars er ætlunin að restin af helginni fari bara í afslöppun og sjónvarpsgláp og smá lærdóm...
en meira var það nú ekki í bili.. er bara að reyna að vera dugleg að blogga aðeins oftar Glottandi

Hérna koma svo myndir af okkur síðan í gær...
 Sheriff Unnur  SúperElías

Ađalvalmynd

Auglýsing

Ýmislegt sniđugt

Hitt og ţetta

Textareitur

Viljum endilega mćla međ ađ sem flestir fái sér skype á www.skype.com og bćti okkur svo viđ listann sinn svo viđ getum hringt ókeypis gegnum netiđ...
Skype nöfnin okkar eru unnurkaren og eliasraben

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur